Umdeildir hjónaskilnaðir á hringbraut

Helstu álitamálin sem geta komið í upp í kjölfar hjónaskilnaða voru rædd í þaula í þættinum Ég bara spyr sem var á dagskrá Hringbrautar á þriðjudag, en spurningar um þetta efni eru meðal þeirra algengustu á upplýsingaveitunni spyr.is.

Í þættinum kom meðal annars fram að ágreiningsmál eru algengari og oft erfiðari hjá sambúðarfólki sem skilur, í samanburði við gift hjón. Það er vegna þess að réttarstaða þeirra sem eru giftir, er mun skýrari samkvæmt lögum en þeirra sem eru í sambúð. Sönnunarbyrði sambúðarfólks getur því verið mjög erfið, ef deilur koma upp í kjölfar skilnaðar hjá sambúðarfólki.

Oddgeir Einarsson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda OPUS lögmannstofu í Austurstræti, segist sjálfur helst vilja að hjónaskilnaður gæti farið fram án samþykkist þess aðila sem biður ekki um skilnaðinn. Í dag eru lögin hins vegar þannig að ef annar aðilinn er ósamvinnufús eða vill ekki skrifa undir skilnaðarpappíra, þurfa málin oft að fara fyrir dóm eða tefjist óþarflega lengi.

Þá segir hann nokkuð óréttláta stöðu uppi þegar börn búa til jafns á heimilum beggja foreldra. Barnið geti aðeins verið með lögheimili skráð hjá öðru foreldri, sem þýðir að hinu foreldrinu er gert að greiða meðlag samkvæmt lögum. Þá hefur lögheimilisforeldrið meira ákvörðunarvald, til dæmis varðandi val á skóla eða búsetu. Lögheimilisforeldrið fær einnig barnabætur greiddar.

Sr. Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bústaðarkirkju var einnig gestur þáttarins, alvanur því að fást við erfiðleika í hjónaböndum fólks. Hann segir mikilvægast að fólk viðhaldi ástinni, með því að gefa hvort öðru tíma.

Þátturinn er sjánalegur á hringbraut.is í heild sinni eða í klippum.