Hjónabandsmetið á íslandi slegið - gift í 76 ár

Hjónin Agnar Bjarnason og Kristrún Guðmundsdóttir, búsett að Kambsvegi í Reykjavík, hafa verið gift lengur en nokkur önnur íslensk hjón í sögunni, eða í 76 ár og sjö daga. Þau voru gefin saman í Laugarnessókn þann 9. maí árið 1943, þegar Agnar var 22 ára og Kristrún var 18 ára. Í dag eru þau 98 ára og 94 ára.

Langlífi, Facebook-síða sem er tileinkuð langlífum Íslendingum og haldgóðum hjónaböndum, greinir frá þessum tímamótum.

Greint er frá því að eldra met hafi verið 75 ár og 299 dagar, sem Gunnar Jónsson og Dallilja Jónsdóttir í Stykkishólmi hafi átt. Aðeins eru tvö önnur dæmi um að hjón hafi verið gift í 75 ár.

Í dag eru sjö hjón á lífi sem hafa verið gift í 70 ár eða lengur. Árið 1947 héldu fyrstu íslensku hjónin upp á 70 ára hjúskaparafmæli. Síðan þá hafa rúmlega 80 bæst við.

Hringbraut óskar Agnari og Kristrúnu innilega til hamingju með áfangann!

\"\"