Rauði kross Íslands fékk heldur rausnarlega gjöf í morgun frá hjónum, sem vilja ekki láta nafn síns getið, eða þrjátíu milljónir króna.
Frá þessu er greint á vef RÚV.
Hjónin millifærðu peninginn til Rauða krossins í morgun en samtals hafa safnast um hundrað milljónir króna í söfnun Rauða krossins til styrktar hjálparstarfi vegna stríðsins í Úkraínu.
Auk fjáröflunarinnar vinnur Rauði krossinn að því að safna fötum, senda erindreka til Úkraínu og landa þar í kring ásamt því að undirbúa komu flóttafólks hingað til lands.
Í gær greindi Rauði kross Íslands frá því að þeir muni breyta verslun sinni við Hlemm tímabundið í fataúthlutunarstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk.