Hjólreiðamaðurinn sem ekið var á í Ártúnsbrekku í Reykjavík í morgun er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni nú síðegis. Maðurinn var á sextugsaldri.
Tilkynning um slysið barst lögreglu á sjöunda tímanum í morgun, en lokað var fyrir umferð um austurreinar Ártúnsbrekku á aðra klukkustund vegna þessa.
Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að slysinu að hafa samband í síma 444 1000. Einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.