Hjóla­stóll Haraldar týndist og honum ráð­lagt að fara og leigja sér stól

Haraldar Þor­leifs­son, eða Halli, frum­kvöðull og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, deildi leiðinlegum fréttum með fylgjendum sínum á Twitter í gær.

Hringbraut greindi frá málinu í gær. Svo virðist breska flugfélagið British Airways hafi týnt hjólastólnum hans Halla á meðan hann var í flugi með þeim.

Nokkru síðar greindi Halli frá því að stóllinn væri enn ófundinn. En að flugfélagið hafi ráðlagt honum að fara og leigja sér stól, á laugardegi, í Kaíró í Egyptalandi segir Halli í nýjustu færslu sinni á Twitter.

Með smá kaldhæðni segir Halli jafnframt í færslunni: „Þetta er í lagi samt. Þeir eru tilbúnir til að endurgreiða mér leiguna á ímyndaða hjólastólnum ef ég geymi kvittun.“

Ekki er ljóst hvernig ferðasaga Halla endaði en vonandi hefur hann komist áfram ferða sinna.