Hringbraut hefur fylgst með óförum Haraldar Þorleifssonar, eða Halla, sem er frumkvöðull og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno.
Halli er á ferðalagi og nú staddur í Kaíró í Egyptalandi og greindi hann frá því á Twitter-síðu sinni í gær að breska flugfélagið British Airways hefði týnt hjólastólnum hans.
Nú sólarhring síðar er stóllinn hans fundinn og svo virðist sem stóllinn hafi aldrei skilað sér inn í flugvél Haraldar í gær. Stóllinn fannst í London samkvæmt nýjustu Twitter-færslu Halla.
Flugfélagið virðist þó ekki getað gefið Halla skýr svör um það hvort stóllin berist með flugi í dag. „Í millitíðinni er ég fastur, get ekki farið, get ekki gert neitt,“ segir Halli á Twitter.
They found the chair. It’s in London. I’m in Cairo.
— Halli (@iamharaldur) April 10, 2022
It is supposed to arrive tonight but they can’t confirm if it’s on the only flight here today.
In the meantime I’m stuck, can’t leave, can’t do anything.