Hjóli Hrafn Jónssonar, fjölmiðlamanns, var stolið fyrir um sex mánuðum og var hann ekki lengur vongóður um að fá það aftur. Hrafni var því nokkuð brugðið þegar hann fékk skilaboð í morgun um að hjólið hefði fundist aftur. Bjargvætturinn var enginn annar en hjólahvíslarinn Bjartmar Leósson.
„Það var því smá sjokk þegar einn ótrúlegasti maður sem ég hef kynnst, Bjartmar Leósson, sendi mér línu í morgun um að hugsanlega hefði hjólið sést. Og viti menn, klukkustund síðar var hann búinn að fanga hjólið og staðfesta að um rétt hjól væri að ræða með réttu stellnúmeri og koma til mín í heimsendingu,“ skrifar Hrafn á Facebook.
Bjartmar hefur árum saman unnið mjög óeigingjarnt starf við að leita uppi stolin og týnd hjól og ber Hrafn Bjartmari góða sögu og segir hann vera stórmerkilegan einstakling. Hann er þó ekki jafn ánægður með þátt lögreglunnar í málinu.
„Strax þegar hjólinu var stolið í ágúst hafði hann samband og sagðist ætla að skoða þetta fyrir mig. Sama dag hafði hann í gegnum sambönd sín fengið mjög skýra mynd af þjófunum úr öryggismyndavél. Ég sendi þessi gögn samviskusamlega til lögreglunnar sem segir ekki nokkurn skapaðan hlut um það. Ég í barnslegri einlægni trúði því að það væri bara tímaspursmál hvenær hjólið mundi finnast með svona sterk sönnunargögn, en ekkert gerðist.“
Hrafn bætir því við að hann hafi tvisvar hringt til lögreglunnar til að athuga með stöðu málsins en lítið hafi verið um svör og nokkrum vikum síður hafi hann fengið póst um að málinu hefði verið lokað.
„Ég skil að lögreglan er vanfjármögnuð og vanmönnuð. En hvað er hún nákvæmlega að gera ef ekki að sýna því minnsta áhuga að rannsaka glæpi? Þetta er ekki eins og þessi hjól sem eru að hverfa séu bara eitthvað drasl; þetta eru verðmæti upp á hundruði þúsunda, og í einhverjum tilfellum milljónir og það eru mýmörg dæmi þess að lögreglan sýni því engan áhuga að leysa þessi mál.“
Að sögn Hrafns gerir lögreglan lítið sem ekkert til að leysa hjólaþjófnaði, jafnvel í þeim tilvikum þar sem hún hefur upplýsingar um hvar hjólin eru og hver þjófurinn er. Þá segir hann þetta síður en svo til þess fallið að auka borgaralega trú hans á lögreglunni.
„Þessi glæpur var leystur í krafti eins manns, hans ástríðu og þess trausts sem hann fær í samfélaginu og hann biður ekki um neitt í staðinn. Hann á samt skilið að fá fullt, og meira en bara þakkir,“ segir Hrafn og bætir því við að hann sé að skoða hvort hægt sé að koma upp einhvers konar vettvangi fyrir fólk til að koma frjálsum framlögum til Bjartmars.
„En ég segi bara takk aftur Bjartmar, takk fyrir að standa þessa vakt sem enginn annar hefur gert hingað til. Og takk fyrir nákvæmlega ekki neitt lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.“