Framkvæmdastjórinn og Hjalti Árnason, betur þekktur sem Hjalti Úrsus, lýsir skoðunum sínum á komandi bæjarstjórnarkosningum í heimabæ sínum Mosfellsbæ í pistli sem birtist á Vísi í dag.
Haraldur Sverrisson, hefur leitt lista Sjálfstæðisflokksins í bænum um árabil og verið bæjarstjóri frá árinu 2007. Hann hefur gefið út að hann ætli ekki að gefa kost á sér í komandi kosningum, og því er ljóst að prófkjör Sjálfstæðisflokksins skiptir ansi miklu máli.
„Nú er komið að bæjarstjórnarkosningum hér í Mosfellsbæ, mikilvægt er að þeir sem kjörnir verða séu hlutlausir og ekki fyrirfram bundnir af loforðum til vinstri og hægri.“ segir Hjalti, en í pistli sínum fer Hjalti yfir tvo einstaklinga sem sækjast eftir efsta sæti listans. Það eru þau Ásgeir Sveinsson og Kolbrún G. Þorsteinsdóttir.
Hjalti virðist ekki vera sáttur með starf Ásgeirs í stjórn Aftureldingar, og kallar vegferð hans þar „óskiljanlega“. Hann minnist sérstaklega á hvernig látið hefur verið með frjálsar íþróttir og lyfingaíþróttir, en líkt og alþjóð veit keppti Hjalti um árabil í kraftlyftingum.
„Ásgeir Sveinsson hefur óskað eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og hefur hann talað um forystuhlutverk sitt í lýðheilsumálum sem ástæðu þess að það ætti að kjósa hann. Hins vegar hefur hann leitt aðalstjórn Aftureldingar í óskiljanlega vegferð þar sem ákveðið hefur verið að binda endi á iðkun frjálsra íþrótta í Mosfellsbæ og þar með eyðileggja hundruð milljóna fjárfestingu Mosfellinga í Varmárvelli.
Ennfremur hefur hann fyrir sitt leyti samþykkt tillögu aðalstjórnar Aftureldingar um að leggja niður bæði kraftlyftingar og ólympískar lyftingar í bæjarfélaginu, þar fyrir utan styður hann bréf sem stjórn Aftureldingar sendi bæjarstjórn þar sem farið er fram á að 25 ára aðgengi almennings að Íþróttamiðstöðinni að Varmá yrði lokið.“
Í lok pistils síns lýsir Hjalti yfir stuðningi við Kolbrúnu. Hann minnist á að hún sé kennari og lýðheilsufræðingur, og segir að reynsla hennar yrði mikilvæg fyrir bæinn.
„Kolbrún G. Þorsteinsdóttir er hefur líka gefið kost á sér í 1. sæti og mun ég styðja hana þar sem hún er bæði kennari og lýðheilsufræðingur, gríðarleg reynsla hennar að skóla og lýðheilsumálum er mikilvæg fyrir Mosfellsbæ, síðast en ekki síst er hún skynsöm og réttsýn manneskja.“