Hjálpar þurfi vegna dónaskapar jóns

 

Færsla Jóns Gunnarssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins á facebook hefur vægast sagt vakið hörð viðbrögð. Jón hjólaði í Björk eins og Hringbraut greindi fyrst fjölmiðla frá í gær eftir að hún kallaði formenn stjórnarflokkana sveitalubba í viðtali við Sky og vísaði þar til virkjanastefnu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fór fram á afsökunarbeiðni frá Jóni. M.a. hefur verið rætt hvort ummæli Jóns um dauflegt augnaráð söngstjörnunnar gefi í skyn að Björk sé á lyfjum. Jón spurði einnig hvort Björk greiddi skatta hér. Faðir Bjarkar steig fram og sagði að það gerði Björk sannarlega en spurði hárbeitt í leiðinni hvort sama ætti við um álverin en Jón þykir afar stóriðjusinnaður þingmaður. Og nú hefur Birgitta Jónsdóttir, þingmaður vinsælasta flokks samtímans skv. skoðanakönnunum, stigið fram Björk til varnar. En Birgitta gerir meira en það. Hún segir Jón tudda.

Í færslu sem Birgitta birti á eigin fésbók um miðnætti í nótt segir:

„Enginn núlifandi Íslendingur hefur gert eins mikið fyrir land og þjóð og Björk. Einhvern karlangi sem reyndir að gera lítið úr henni verður bara sjálfum sér til skammar. Hann mun aldrei biðjast afsökunar á sínum dylgjum og mannvonsku.“

Á þingkonan þar við Jón Gunnarsson.

Og hún bætir við. „Ég þurfti að sitja við hliðina á honum í heilt ár og þurfti nánast að leita mér áfallahjálpar vegna dónaskapar hans enda er hann þekkur fyrir að tuddast áfram yfir allt og alla á þinginu.“

Svo lýkur Birgitta færslunni á að lofa Björk og segir að hvar sem hún komi þekki allir verk hennar og landið, þökk sé Björk.

Hringbrauut hefur sent Jóni fyrirspurn vegna ummæla Birgittu.