Hjálpa þér að selja fötin þín og minnka fatasóun

Trendport er nýr fatamarkaður sem opnar í dag að Nýbýlavegi 6. Þar geta einstaklingar pantað sér bás á Trendport.is, komið með fötin sín og sett upp bás þar sem fötin fá að vera í viku. 

„Trendport er fatamarkaður þar sem þú getur komið með fötin þín sem þú ert hætt eða hættur að nota, og sérð ekki fyrir þér að þú hafir not fyrir þau lengur. Þú vilt kannski koma þeim aftur í umferð af því að þau eru í góðu standi og á sama tíma tímirðu ekki að henda þeim endilega. Þá geturðu komið til okkar með þau og leigt þér bás og selt fötin,“ segir Þórunn Elva Þorgeirsdóttir, einn stofnenda Trendport, í samtali við Snædísi Snorradóttur, dagskrárgerðarkonu Hringbrautar.

Trendport sér um að selja fötin og því er ekki þörf á viðveru þess sem kemur með þau. „Þú leigir básinn hjá okkur. Svo kemurðu og setur hann upp. Eftir að þú hefur sett básinn upp geturðu farið heim til þín og fylgst með sölunni á netinu,“ bætir hún við.

Á markaðnum verður alltaf góðgerðarbás til staðar. „Við verðum alltaf með góðgerðarbás. Við ætlum að hafa nýtt málefni hvern mánuð. Við veljum einhvern sem vantar hjálp, málefni eða einstakling. Þegar sölunni á básnum lýkur hefurðu valkost um að sækja fötin þín aftur og eiga þau og koma þeim annars staðar fyrir, eða gefa þau á góðgerðarbásinn. Hvorki Trendport né viðskiptavinurinn hagnast á því, en þá fara allar flíkur þar á eitt verð og við ætlum að byrja fyrsta mánuðinn á því að styrkja Fanneyju Eiríksdóttur, sem greindist með leghálskrabbamein þegar hún var komin 21 viku á leið á meðgöngu,“ segir Þórunn Elva einnig.

Íslendingar henda að meðaltali 15 kílóum af fatnaði á ári og því telur Þórunn Elva nauðsynlegt að koma markaði sem þessum á laggirnar til að minnka fatasóun. Hún segir viðtökurnar hafa verið góðar: „Fólk er voða ánægt með þetta. Við seldum upp fyrstu vikuna okkar, eiginlega bara strax, og erum ekkert smá ánægð með það og vonum bara að þetta haldi áfram og að fólk sé svolítið að átta sig á að það á sér stað gríðarleg fatasóun á Íslandi. Hver Íslendingur er að henda um 15 kílóum af fötum á ári. Ennþá betra væri að koma þeim aftur í umferð á lægra verði og græða smá pening í leiðinni og taka til í fataskápnum sínum.“

Viðtalið við Þórunni Elvu má sjá hér: