Hiv-faraldrinum útrýmt fyrir 2030

Markmið Sameinuðu þjóðanna um að veita 15 milljónum manna meðferð við HIV-veirunni fyrir lok þessa árs hefur nú þegar verið náð. Markmiðinu var í raun náð í mars, níu mánuðum á undan áætlun.

Mikill árangur hefur náðst í baráttunni gegn HIV-smiti og eyðni. Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna kemur fram að frá aldamótum hafi tekist að koma í veg fyrir um 30 milljón ný HIV-smit og átta milljónir dauðsfalla vegna veirunnar. 

Þessum mikla árangri má að mörgu leyti þakka hnattrænni vitundarvakningu um veiruna. Hins vegar sé langt í land og framfarir mismunandi eftir landsvæðum. 66% nýrra HIV-smita má finna í ríkjum Afríku sunnan Sahara, en Sameinuðu þjóðirnar áætla að tæplega 26 milljónir manna séu smitaðar af HIV í heimsálfunni. Talið er að tæplega 37 milljónir manna séu smitaðir á heimsvísu.  

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur látið það eftir sér að heimurinn þurfi að standa saman og skuldbinda sig til að útrýma veirunni fyrir fullt og allt. Samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna hefur árangur undanfarinna mánaða sýnt fram á að hægt sé að útrýma sjúkdómnum fyrir árið 2030 með samfelldum aðgerðum næstu fimm árin.