„hitt co2-vandamálið“

Súrnun sjávar hefur áhrif á lífríki sjávar en mjög margt er enn órannsakað, segir Hrönn Egilsdóttir, líffræðingur í þættinum Súrefni, vikulegum þætti á mánudögum sem fjallar um umhverfismál.  Ábyggilegt er þó að afleiðingar súrnunar séu neikvæðar og sem dæmi getur ýmis hafgróður sem skemmist haft áhrif á framgang fiskistofna, það er, hvernig ungviðinu farnast.

Súrnunin kemur í veg fyrir að kórallar og svif geti myndað ákveðna tegund af kalki og eru þekkt dæmi um að vegna þess leysist kóralrif upp. Kóralrif eru mikilvæg hýbýli eða felustaðir fyrir ýmsar smærri lífverur í hafinu og litla fiska svo dæmis sé nefnt.

Hrönn sem sérhæfir sig í súrnun sjávar ræðir við Lindu Blöndal um þetta umhverfismál sem stundum er kallað„hitt CO2-vandamálið“, á eftir hlýnun jarðar. 

Hafið tekur mikið í sig af Koldíoxíð sem er í andrúmsloftinu. Með minni losun gróðurhúsalofttegunda (CO2) getur því dregið úr súrnun hafsins. Talið er að 30–40 prósent af þeim koltvísýringi sem starfsemi manna losar út í loftið leysist upp í hafinu, ám og vötnum. 

Súrefni - þáttur um umhverfismál hefst kl.20.30. Umsjón hefur Linda Blöndal og Pétur Einarsson.