Loksins hyllir undir eitthvert vor að ráði á Ísalandi sem sannarlega hefur staðið undir nafni þennan veturinn. Það er ekki fyrr en nú um miðjan apríl sem helstu þjóðleiðir eru orðnar auðar og þótt hálkubletti megi ennþá finna á fjallvegum á Öxnadalsheiði og Vatnsskarði má heita að dagurinn í dag marki þau tímamót að loks sé orðið greiðfært um allt land.
Veðurfræðingar sjá hlýindi í kortunum. Hiti fer líklega í 15 gráður um norðanvert landið fram á helgi og annars staðar á landinu verður veður mjög spaklegt og hvetur eflaust margan manninn til að taka til í görðum sínum og öðru nærumhverfi.
Éljagangur næstu helgar, sem var í kortunum í upphafi vikunnar, virðist ekki ætla að ganga eftir og má búast við því að hiti á öllu landinu verði vel yfir frostmarki að degi til fram í miðja næstu viku, eða eins lengi og framtíðarspáin sér fram í tímann.
Það er svo auðvitað enn til marks um vorfiðringinn að Vegagerðin er byrjuð að setja þungatakmarkanir á vegi víða um land eins og kynnast má frekar á korti inn á síðu hennar, vegagerdin.is.