Það eru norðlægar áttir í kortunum næsta sólarhringinn sem snúast svo í suðaustan og suðvestanátt þegar líður tekur á vikuna - og er ekki útlit fyrir mikil hlýindi, enda verður hitastigið um og undir frostmarki allt fram yfir næstu helgi með talsverðum éljagangi, snjókomu og á köflum hvassviðri. Bjartast verður norðaustan- og austantil en heldur verður hann þykkfengur á öðrum svæðum landsins.
Þessu mun vitaskuld fylgja snjóþekja á helstu þjóðleiðum, en mjög víða eru hálkublettir á vegum landsins, svo sem á leiðinni austur fyrir fjall, á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Snjóþekja er víða á Vestfjörðum en eitthvað um hálku og hálkubletti. Á Norðurlandi er snjóþekja víða og eitthvað um hálku og hálkubletti. Þæfingsfærð er í Kinninni. Varað er við grjóthruni í Mánárskriðum og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát.