Hiti allt að 20 stigum á landinu

Landsmenn geta loks farið að taka sumarið í sátt eftir einn lengsta vetur í manna minnum, enda má búast við því að hitatölur verði víða frá 15 til 20 gráður á landinu næstu daga þótt vissulega megi finna svalari staði.

Um vestanvert landið verður 18 stiga hiti í dag og á morgun, bjrat að mestu norðvestantil en annars skýjað og víða þokuloft. Hitinn nær sér einna síst upp við austanvert landið, gæti rjátlað þar eithvað í kringum átta gráðurnar, en víðast hvar annars staðar verður hann vel yfir tíu gráðunum og allt upp undir 17 stig þegar líða tekur á vikuna.

Á föstudag verður hlýjast vestan- og norðanlands, allt að 20 stig, en þá má búast við þoku eystra í austlægum áttum en björtu veðri víðast hvar annars staðar og verður áfram hlýtt í veðri.