Hirðir ekki um ummæli skipstjóra

„Ég ætla ekki að fara að kommentera á eitthvað sem Ólafur segir,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja vegna fréttar Hringbrautar í gær þar sem skipstjóri bar forstjórann ýmsum ávirðingum.

Ólafur Örn Jónsson taldi það fara illa saman að Þorsteinn Már talaði um mannréttindi í samskiptum við Seðlabankann þegar hann hefði sjálfur brotið á mannréttindum sjómanna og starfsmanna Hampiðjunnar vegna pólitískra skoðana þeirra og yfirlýsinga opinberra samtaka. Þannig hefði Ólafur sjálfur orðið að hætta við þátttöku á lista Frjálslynda flokksins vegna andúðar Þorsteins Más gegn breytingum á kvótakerfinu. Lesa má frétt gærdagsins á Hringbraut hér.

Þorsteinn Már telur ekki þjóna tilgangi að svara Ólafi og mun láta ávirðingum hans ósvarað eins og fyrr segir.