Reykjavíkurborg og Samtökin ’78 hafa undirritað tímamótasamning sem kveður á um greiðslu borgarinnar til samtakanna fyrir fræðslu um málefni hinsegin fólks. Samningurinn hljóðar upp á 15 milljónir króna sem dreifist á þrjú ár.
Samkvæmt samningunum munu Samtökin ’78 sinna fræðslu í grunnskólum Reykjavíkurborgar, bæði til nemenda og starfsfólks, um stöðu samkynhneigðs, tvíkynhneigðs, pankynhneigðs, asexual, intersex og transgender fólks, gjarnan nefnt hinsegin fólk. Einnig verður greitt til reksturs samtakanna, fræðslu og ráðgjafaþjónustu.
Markmið með samningi um fræðslu í grunnskólum er að samtökin skipuleggi og framkvæmi fræðslufundi fyrir nemendur, kennara og aðra þá sem starfa hjá grunnskólum Reykjavíkurborgar. Langtímamarkmið fræðslustarfsins er að gera kennara og aðrar fagstéttir smám saman sjálfbjarga í fræðslu um málefni hinsegin fólks.
Samningurinn kveður á um að tveir ráðgjafar skuli starfa fyrir samtökin sem sinna stuðningsviðtölum við hinsegin fólk á öllum aldri og aðstandendur þess. Viðtölin eiga að fara fram í húsnæði samtakanna. Auk þess munu stuðningshópar starfa fyrir hinsegin ungmenni.
Líf Magneudóttir, formaður mannréttindaráðs, sagði við undirritun samninganna það vera mikilvægt að stjórnvöld standi með hvers kyns mannréttindabaráttu og starfi með og hlusti á raddir þeirra sem eru í framlínu þeirrar baráttu. Þess vegna sé það gleðiefni að Reykjavíkurborg skuli endurnýja samninginn við Samtökin ’78 með áherslu á aukna fræðslu í skólum í samstarfi við kennara og Jafnréttisskólann og aukna ráðgjöf til viðkvæms hóps hinsegin fólks. Hún sagði samninginn mikilvægan lið í því að styðja Samtökin enn frekar í baráttu gegn fáfræði og fordómum og hann yrði vonandi bæði ríki og öðrum sveitarfélögum hvatning til að gera álíka samninga.
Hilmar Hildarson Magnúsarson, formaður Samtakanna 78, sagði að um mikilvægan áfanga væri að ræða: \"Reykjavíkurborg sýnir hér í verki stuðning við baráttu hinsegin fólks. Borgin hefur um árabil reynst ötull bakhjarl hinsegin samfélagsins og farið á undan með góðu fordæmi. Það er því sérstakt ánægjuefni að skrifa undir samkomulag sem staðfestir þann ásetning borgaryfirvalda að hvika hvergi af þeirri braut og þvert á móti stórefla stuðninginn. Gleymum því ekki að þetta varðar ekki hinsegin fólk eingöngu. Þetta varðar fjölskyldur þess, vini og í raun samfélagið allt. Stuðningur við lífshamingju og mannvirðingu minnihlutahópa, í þessu tilfelli hinsegin fólks, sendir einfaldlega þau skilaboð að hér viljum við byggja gott samfélag þar sem er pláss fyrir okkur öll. Því ber að fagna.“