Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa myrt nágranna sinn við Barðavog í austurbæ Reykjavíkur síðdegis í gær er sagður hafa verið til ónáða áður.
Fréttablaðið greinir frá því að maðurinn hafi verið ógnandi bæði við dýr og menn.
Samkvæmt heimildum blaðsins hafi hann meðal annars sparkað í gæludýr nágranna sinna.
Greint var frá því í dag að lögreglan hafi verið kölluð út að minnsta kosti tvívegis vegna hins grunaða áður en hann á að hafa orðið manninum að bana.
RÚV greinir frá því að hinn látni og hinn grunaði hafi verið nágrannar, hinn látni hafi verið fæddur 1975 og meintur gerandi árið 2001.
Krafist verði gæsluvarðhalds yfir honum síðar í dag.