Stjórnmálamennirnir sem gefa skýringar á hægagangi stjórnarmyndunarviðræðnanna segja í raun að þar sem þeir nú leggja áherslu á að troða nýjar slóðir fari þeir sér hægt.
Heimildir Hringbrautar verjast allra frétta. Segja það eitt að unnið sé að því að ná góðum málefnasamningi.
Pólitíkin á Íslandi þessa daga er eins og margt annað hér á landi. Í senn fjörmikil sýndar hamagangur og mótsagnakennt aðgerðarleysi.
Syndar hamagangurinn fær miklar undirtektir hjá samfélagsmiðlum sem eru hallir undir að þessi stjórnamyndun lukkist.
Mótsagnakennt aðgerðaleysið fær minni umfjöllun.
Vinnumarkaðsmál eru brýnasta verkefni næstu ríkisstjórnar. Þá er eftir að laga innviði sem eru ekki síður brýnt verkefni.
Þetta eru verkefni nýrrar ríkisstjórnar.
Um þetta næst ekki en þá samstaða í viðræðum flokkanna þriggja.
Hin síðbúna bylting VG verður hugsanlega afboðuð.