Hin óskrifaða frétt

Fyrir tæpum tveimur vikum spurðist að ónafngreindir einstaklingar hefðu keypt eignir innan úr gjaldþrota útgáfufélaginu Vefpressunni, sem var lengst af í eigu Björns Inga Hrafnssonar.

Kaupverðið var á bilinu 400-600 milljónir, mestallt í reiðufé af fréttum að dæma.

Hið keypta var tól, tæki og útgáfuréttur margvíslegra fjölmiðla, til dæmis DV og ÍNN, ásamt um tug léna enn fleiri miðla.

Kaupin fóru fram án vitundar og gegn vilja þeirra sem höfðu skömmu áður eignast meirihluta í félaginu vegna vanefnda á samningum.

Þetta gerðist fáeinum klukkutímum áður en félagið hefði orðið gjaldþrota, sem hefði getað endað með fangelsisvist Björns Inga og fleiri vegna vangoldinna vörsluskatta og annarra lögboðinna gjalda, svo sem til lífeyrissjóða.

Á sínum tíma spurðu margir sig einfaldrar spurningar:

Hver kaupir gjaldþrota fjölmiðlafyritæki á hálfan milljarð, þegar virði þess er brotabrot af fjárhæðinni og hægt væri að stofna viðlíka fjölmiðla fyrir fjórðung eða jafnvel enn minna af fjárhæðinni?

Hið augljósa svar var enginn.

En einhver vildi samt skera Björn Inga niður úr snörunni og kosta til þess nokkur hundruð milljónum. Hver og hvers vegna?

Örfáum sólarhringum síðar urðu stjórnarslit og fréttir af þessum furðulegu stórfjárfestingum í Birni Inga hurfu undir radar fréttamanna.

Þangað til í gær. Þá birti Sigurður G. Guðjónsson lögmaður færslu þess efnis á facebook, að fyrirtækið Frjáls fjölmiðlun ehf. hefði nú tekið yfir rekstur DV, ÍNN og vefmiðlanna allra. Framkvæmdastjóri væri Karl Garðarsson, sem gerðist á alþingi sérstakur baráttumaður gegn kennitöluflakki.

Spurul sál innti þá Sigurð eftir því á facebook hver ætti Frjálsa fjölmiðlun ehf.

Svarið kom um hæl:

„Dals dalur ehf. sem ég á.“

Þetta er kunnugleg hótfyndni meðal stráka í bissniss. Félagið sem eignaðist Vefpressuna eftir vanefndir heitir Dalurinn ehf.

Þess vegna heitir félag Sigurðar vitaskuld Dals dalur ehf. og hann á það alveg sjálfur.

Þetta er jú fullorðið og þroskað fólk.

Eftir stendur þó upphaflega spurningin:

Hver taldi það nokkur hundruð milljóna virði að henda peningum út um gluggann til að forða Birni Inga Hrafnssyni og öðrum frá persónulegum vandræðum?

Og hvers vegna?

Það er hin óskrifaða frétt.