Breskar fjármálastofnanir hafa flutt yfir 120 þúsund milljarða króna úr bresku fjármálakerfi eftir að Bretar samþykktu útgöngu úr Evrópusambandinu með þjóðaratkvæðagreiðslu í júní árið 2016. Þetta kemur fram í skýrslu sem fyrirtækið Ernst og Young gerði og pressan.DV.is greinir frá.
Í skýrslunni kemur fram að þessi tala gæti verið umtalsvert hærri og að breskar fjármálastofnanir hafi nú þegar flutt yfir 2000 störf úr landi. Sú tala gæti farið upp í 7000 störf fyrir 29. mars næstkomandi samkvæmt skýrslunni, þegar áætlað er að Bretland gangi formlega úr Evrópusambandinu. Yfir 55 prósent banka og fjárfestingabanka hyggjast draga verulega úr starfsemi sinni í Bretlandi eftir að útganga hefur formlega átt sér stað.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hyggst í janúar leggja útgöngusamninginn sem hún samdi við Evrópusambandið um fyrir breska þingið. Líklegt þykir að kosið verði um samninginn í næstu viku.
Í desember greindi Fréttablaðið frá því að May hafi tekið ákvörðun um að fresta atkvæðagreiðslu breska þingsins um samþykkt útgöngusamningsins, þar sem hún óttaðist að hann yrði felldur naumlega. May hafði vonast eftir að stuðningur við samning hennar myndi aukast yfir hátíðarnar en ný könnun sem YouGov framkvæmdi og greint var frá á Mbl.is bendir þvert á móti til þess að andstaða við samninginn hafi aukist meðal þingmanna.