Hilmar Þór Björnsson arkitekt segir að eftir lestur á grein Ragnars Árnasonar þá sé hann að átta sig enn meira á að verið sé að færa hugmyndin til á stað sem sé ekki góður.
Hilmar, sem hefur lengi skrifað um skipulagsmál, hefur verið mjög fylgjandi Borgarlínunni. Sagði hann í viðtali á Sprengisandi fyrir tveimur árum að engin önnur leið sé í boði þegar litið sé til framtíðarskipulags borgarinnar.
Líkt og greint var frá fyrr í dag sagði Ragnar að þjóðhagslegt núvirði Borgarlínunnar sé neikvætt, ólíkt því sem kom fram í skýrslu COWI og Mannvits.
„Fyrir nokkrum vikum þegar félagsfræðileg skýrsla um samfélagslegan ábata Borgarlínunnar var lögð fram gerði ég athugasemd við að höfundar skýrslunnar ráðgjafarnir COWI og Mannvit væru líka helstu ráðgjafar verkkaupa Borgarlínunnar. Þeir eiga tvímælalaust hagsmuni af því að útkoman sé jákvæð,“ segir Hilmar á Facebook. „Nú hefur einn virtasti hagfræðingur landsins, Ragnar Árnason rýnt skýrsluna og komist að annarri niðurstöðu. Þetta er skelfilegt að upplifa. Ég hef verið mikill stuðningsmaður hugmyndarinnar um Borgarlínunnar eins og hún var lögð fram í upphafi en er sífellt að átta mig betur á þvi að verið er að færa hugmyndina til á stað sem er ekki góður. Mér finnst ekki faglega að þessu unnið.“
Hilmar mælir með grein Ragnars: „Við þurfum að vanda okkur miklu betur og taka okkur þann tíma sem þarf.“
Fjölmargir hafa gert athugasemd við skrif Hilmars, þar á meðal Bolli Héðinsson hagfræðingur sem segir: „Þarf ekki að greina frá því sem óhjákvæmilega þyrfti að koma í staðinn? Nýjar götur kosta pening og taka pláss, m.a. dýrmætt pláss sem væri betur nýtt með öðrum hætti. Aukin bílaumferð í þéttbýli breytir líka umhverfinu og ekki endilega til þess vegar sem æskilegt getur talist.“
Mörður Árnason, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, segir Hilmari að fara varlega þegar kemur að áliti á Ragnari: „Fara varlega, Hilmar Þór -- ,,einn virtasti hagfræðingur landsins'' ?? Svona svipað og einn virtasti stjórnmálafræðingur landsins, Hannes Hómsteinn Gissurarson.“