Hillary clinton er ómyrk í máli

Frambjóðandi flokks demókrata segir skröksögur og munnmæli hafa átt ríkan þátt í því að hún tapaði í bandarísku forsetakosningunum í nóvember í fyrra.

Þá segir hún að rússneskir tölvuþrjótar hafa haft afskipti af framboði hennar. Fyrrum aðalframkvæmdastjóri alríkislögreglunar (FBI) James Comey hafi hjálpað til við að snúa sókn hennar í vörn og hafi átt sinn þátt í að hún tapaði kosningunum.

Hillary Clinton satt ráðstefnu í borgini Los Angeles í Kaliforníu ríki um tæknimál. Notað hún tækifæðir og ræddi þessi mál og var hún ómyrk í máli.

Nefndi hún að Facebook vefurinn hefði líkast til ekki stöðvað dreifingu sköksagna um hana og munnmæla. Dreifing falskra frétta á samfélagsmiðlum hefðu víðtæk áhrif því fólk reiddi sig á upplýsingar sem þessi miðlar dreifa.

Hillary Clinton hefur átt í vök að verjast sökum sökum meðal annars þess sem fram kemur í bókin \"Shattered\" eða \"Möluð\" eftir Jonathan Allen og Amie Parnes sem nýverið kom í Bandaríkjunum. Þar eru stórð orð ekki spöruð um vanhæfi og hroka Hillary Clinton og um framboð hennar og kosningabáráttu.

Hillary Clinton er venjuleg ónæm fyrir gagnrýni. En nú bregður svo við að hún svarar gagnrýni fullum hálsi.

Hún var fyrst bandarískra kvenna til að eiga raunhæfan möguleika á að verða forseti Bandaríkjanna. Hún beið lægri hlut fyrir keppinaut sínum Barck Hussein Obama sem frambjóðandi demókrata árið 2008. Hún tapaði svo í forsetakosningunum árið 2016 fyrir repúblíkananum Donald J Trump.

rtá

Nánar www.reuters.com www.bostonherald.com  www.follownews.com