Hildur vill leggja niður lýðræðisráð

Hildur Sverrisdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í stjórnkerfis- og lýðræðisráði, lagði til á fundi þess í gær að ráðið yrði fellt niður; árangur þess réttlæti ekki kostnað. Meirihlutinn felldi tillöguna en samþykkti færa ráðið niður um flokk og spara þannig Reykjavíkurborg rekstrarkostnað.
 

Stjórnkerfis-og lýðræðisráð tók til starfa eftir síðustu borgarstjórnarkosningar, en formaður þess er Halldór Auðar Svansson, borgarfulltrúi Pírata. Sjálfstæðismenn í borginni telja ráðið vera lið í meirihlutasamkomulagi þeirra flokka sem nú eru við völd en kostnaður við ráðið í ár er um átján milljónir, að því er fram kemur í frétt RÚV um málið í gærkvöld.

Hildur Sverrisdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu, segir í tillögu sinni  að stærsti kostnaðurinn við stjórnkerfis- og lýðræðisráð séu nefndarstörfin - hann hlaupi á milljónum sem borgarsjóður eigi ekki til.  Engin þörf sé á því að halda úti sérstöku ráði til að hafa eftirlit með því \"umfram aðra til þess bærra aðila innan borgarkerfisins sem geta haldið þeim markmiðum á lofti í þeim verkefnum sem ráðið hefur nú á sinni könnu.“

Meirihlutinn felldi tillöguna en samþykkti þó að færa ráðið niður um flokk og spara þannig rekstrarkostnað.