Hildur Guðnadóttir, tónskáld, vann í nótt verðlaun fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker á Golden Globe verlaunaafhendingunni.
Hildur, sem er annar Íslendingurinn til þess að vinna til verðlaunanna er jafnframt fyrsta konan í 19 ár sem sigrar verðlaun fyrir bestu frumsömdu tónlistina ásamt því að vera fyrsta konan til þess að vinna þau ein síns liðs.
Verðlaunin eru ekki þau fyrstu sem Hildur fær fyrir tónverk sín en hún hlaut einnig Emmy verðlaun fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl ásamt því að vera tilnefnd til Grammy verðlauna fyrir þá.