Hildur vann emmy verðlaun fyrir chernobyl

Í nótt hlaut tónskáldið Hildur Guðnadóttir Emmy verðlaun fyrir bestu frumsömdu tónlist í sjónvarpsþáttaröðinni Chernobyl. Þetta var í fyrsta sinn sem Hildur hlaut tilnefningu til Emmy verðlana. Tileinkaði hún fólkinu sem þjáðist vegna kjarnorkuslyssins í Tsjernobyl í Úkraínu verðlaunin. RÚV greinir frá.

Verðlaunin vann hún fyrir tónlist sína í Please Remain Calm, öðrum þætti þáttaraðarinnar. Chernobyl hefur hlotið margróma lof ogvann til alls sjö verðlauna í nótt.

Þáttaröðin var frumsýnd á HBO-sjónvarpstöðinni í vor og fjallaði um slysið sem varð í kjarnorkuverinu í Tsjernobyl í Úkraínu árið 1986. Tónlist þáttanna er sögð bæði ómstríð, drungaleg og ægifögur og hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og almennings. Hildur segir að hvert einasta hljóð í tónlistinni komi úr kjarnorkuverinu og leitaði hún þá í kjarnorkuverið í Litháen þar sem þættirnir voru teknir upp fyrir innblástur og upptökur fyrir tónlist sína.

Sjá einnig: Hildur samdi tónlistina í Chernobyl – Hvert einasta hljóð í tónlistinni frá upptökum í kjarnorkuveri

Hildur samdi einnig tónlistina í kvikmyndinni Joker, sem hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sem fór fram frá 28. ágúst - 7. september. Verðlaunin eru aðalverðlaun hátíðarinnar, sem er elsta kvikmyndahátíð í heimi og með þeim allra virtustu. Joker er leikstýrt af Todd Phillips og með aðalhlutverk fer Joaquin Phoenix.

Í fréttatilkynningu frá Kvikmyndamiðstöð Íslands segir að Hildur hafi fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir tónlist sína í kvikmyndinni. Segir meðal annars í The Hollywood Reporter: „Allt þetta verður enn myrkara vegna uggandi trega í tónlist Hildar Guðnadóttur sem umbreytist í drynjandi dramatík þegar óreiðan fer á yfirsnúning.“ Í viðtali við AP sagði Phoenix að tónlist Hildar hafi haft umtalsverð áhrif á þróun persónunnar og andrúmsloftið í kvikmyndinni, en hún byrjaði að semja tónlistina rétt eftir að hafa lesið handritið. 

Hildi var nýverið boðið sæti í bandarísku kvikmyndaakademíunni. Hún hefur áður samið tónlist við kvikmyndir eins og Sicario: Day of the Soldado sem kom út árið 2018 og Tom of Finland frá árinu 2017.

Þá vann Hildur Edduverðlaunin árið 2017 fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Eiðurinn eftir Baltasar Kormák og árið 2016 hlaut hún, ásamt þeim Jóhanni Jóhannssyni heitnum og Rutger Hoedemaekers, Edduverðlaunin fyrir tónlistina í fyrstu seríu sjónvarpsþáttaraðarinnar Ófærð