Hildur Guðnadóttir, tónskáld, hlaut í nótt Óskarsverðlaun fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker. Hildur er fyrsti Íslendingurinn til að hljóta verðlaunin. Þá er Hildur aðeins fjórða konan í 92 ára sögu Óskarsverðlaunanna til að hljóta Óskarsverðlaun fyrir frumsamda tónlist. Hildur var í sjónvarpsviðtali í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins nú í kvöld. Aðspurð um hvernig henni liði á þessari stundu svaraði Óskarsverðlaunahafinn:
„Ég er svo þreytt. Þetta er búið að vera langur rúntur en mér líður náttúrulega æðislega. Ég er aðeins eftir mig, þetta voru svolítið mikil læti í gær.“
Þá bætti Hildur við að hin fjölmörgu verðlaun sem henni hefur hlotnast á síðustu mánuðum færi henni traust í kvikmyndaiðnaðinum. Hún hefði oft neyðst til að fara erfiðar leiðir og taka að sér snúin verkefni þar sem hún þurfti að sannfæra kvikmyndaframleiðendur um að sú leið sem hún vildi fara í listsköpun væri sú rétta fyrir viðkomandi kvikmyndaverk.
„Ég held að þetta muni opna frelsisdyr fyrir mig sem er spennandi,“ bættir Hildur við.
Þá var Hildur spurð að því sem margir vilja vita. Hvað tekur nú við næst? Hildur svaraði:
„Akkúrat núna, bara ekki neitt. Ég ætla að taka mér tíma til að átta mig aðeins og reyna að heyra hugsanirnar mínar aftur,“ sagði Hildur og bættir við að lokum:
„Ég ætla voða lítið að gera akkúrat núna.“