Hildur strax farin að umbylta lífi stúlkna og kvenna: áhrifin eru mögnuð

Hildur Guðnadóttir er strax farin að hafa djúpstæð áhrif á stúlkur og konur með sigri sínum. Í raun má segja að hún hafi breytt lífi þeirra margra. Í kvöldfréttum RÚV var rætt við ungar konur í tónlistarnámi og segja þær að sigurinn efli þær og færi þeim drauma sem voru jafnvel ekki til staðar áður. Aðsókn kvenna í tónsmíðar mun aukast og efla stúlkur og konur.

Hildur hefur brotið veggi, bæði í sinni listsköpun og eins mun sigurinn verða til þess að kvarnast verulega úr karlaveldinu sem stýrir kvikmyndaiðnaðinum í Bandaríkjunum og víðar.

\"\"

Þórunn Gréta Sigurðardóttir, formaður tónskáldafélagsins:

Þórunn Gréta sagði:

Þýðingin sem þetta hefur fyrir íslenskt tónlistarlíf er ótvíræð. Þetta með að konur þurfi oft að vera bara duglegar röksemdin, hún heldur ekki. Og það að hafi hallað á konur vegna gæðanna, það heldur ekki heldur lengur.

Nemar í tónsmíði höfðu þetta að segja:

\"\"

Iðunn Einarsdóttir

Ljóst er á þessu að áhrifin sem Hildur hefur eru gríðarleg, jafnvel bráðum verður talað um Hildar-áhrifin! Iðunn Einarsdóttir er einnig nemi í tónsmíði. Hún hafði þetta að segja:

„Mér finnst ég sjá ný tækifæri sem mér hafði ekki dottið í hug áður. Ég hafði ekki mikið pælt í kvikmyndabransanum fyrir mína tónlist en núna sé ég möguleika  og tækifæri.“

\"\"

Katrín Helga

Katrín Helga segir í fréttum RÚV:

„Hún er úr Hafnarfirði og ég er úr Hafnarfirði líka. Gaman að sjá einhvern líka sem maður getur samsvarað sig við. Mér finnst þetta vera ákveðið leyfi til að leyfa sér að hugsa stórt og leyfa sér að dreyma og þetta er ekkert ógerlegt. Hún sannaði það.“