Hildur: „Sjón­hverfinga­maðurinn Dagur þarf að komast í langt frí“

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæðis­flokksins í Reykja­vík, segist ekki geta orða bundist vegna ó­heiðar­leika Dags B. Eggerts­sonar.

„Á einungis ör­fáum dögum hefur Dagur B. Eggerts­son komið fram af slíkum ó­heiðar­leika í um­ræðunni að manni hrein­lega mis­býður“ segir hún á Face­book síðu sinni.

Hún segir Dag hafa boðið börnum leik­skóla­rými í leik­skólum sem voru ekki til. Á­samt því að hann hafi not­fært börnin í Laugar­dal sem peð í tafli sínu um þjóðar­höll. „Börn kæra sig ekki um að vera pólitísk peð“ segir Hildur.

Hún gagn­rýnir dag fyrir að hafa boðað byltingu í al­mennings­sam­göngum en sker á sama tíma niður hjá Strætó.

Loks segir hún hafa notað bók­halds­brellur og loft­peninga til þess að fegra árs­reikning borgarinnar. „En þegar allt kemur til alls er borgar­sjóður rekinn með 3,8 milljarða tapi“ segir hún.