Samfélagsrýnirinn Hildur Lillendahl er ein þeirra kvenna sem fær ekki sýni úr leghálsi rannsakað. Skimanir fyrir leghálskrabbamein tóku breytingum um síðustu áramót. Umboðsmanni Alþingis hefur borist þriðja tug kvartana frá konum sem sumar greini frá því að hafa beðið lengi eftir niðurstöðu skimunar og óttast um heilsu sína og velferð.
„Ég greindist með staðbundið leghálskrabbamein tvítug. Fékk aftur frumubreytingar tæplega þrítug og fór í keiluskurð nr. 2. Beið í þrjá mánuði sl. áramót eftir tíma hjá lækni til sýnatöku,“ segir Hildur á Twitter.
„Fjórum mánuðum eftir þann tíma fékk ég bréf um að sýnið væri ónýtt og ég ætti að fara aftur í sýnatöku innan þriggja mánaða FRÁ SÍÐUSTU SÝNATÖKU. Rétt að taka fram að því bréfi fylgdi því miður engin tímavél svo ég gat ekki orðið við því. Fór aftur eins hratt og ég gat og minn góði læknir merkti sýnið mitt í algjöran forgang vegna fyrri sögu en ég hef samt ekki nokkra einustu hugmynd um hvort eða hvenær niðurstöður gætu mögulega borist eða hvað gæti verið að grassera í leghálsinum mínum eða víðar meðan ég bíð.“
Hildur segir þetta óþolandi og tók tryllingskast á Twitter:
„ÞETTA ER ÓÞOLANDI HELVÍTIS HELVÍTI OG HVENÆR ÆTLUM VIÐ AÐ TAKA HEILSU KVENNA ALVARLEGA EF EKKI MEÐ SVASVA SEM HEILBRIGÐISRÁÐHERRA? BARA ALDREI? Enda tryllingskast sem ég hef verið að fresta að taka opinberlega af því að allskonar annað sjittdraslálag á konum.“