Hildur Líf Higgins kærði DV til Siðanefndar Blaðamannafélags Íslands vegna greinarinnar „Furðuleg og erfið mál í réttarsal“ sem birtist í DV þann 1. mars á þessu ári. Það var fjallað um eftirminnileg dómsmál og hét greinin um Hildi Líf: Neitaði að hafa misskilið sig og var þar rifjað upp mál frá árinu 2011.
Hildur Líf gerði þrjár athugasemdir við fréttaflutning DV. Í fyrsta lagi fyrir að bendla hana við gamalt sakamál sem hún sagðist aðeins tengjast sem vitni. Í öðru lagi var hún ósátt við myndaval og í þriðja lagi að rangt væri farið með ýmis efnisatriði hvað hana sjálfa varðaði í þessari umfjöllun. Þá segir í kærunni að Hildur Líf gerði athugasemdir við að í umfjöllun DV hafi komið fram að hún hefði verið í stresskasti inni á salerni í dómsal árið 2011 og að hún hafi flutt til Bandaríkjanna og tekið upp mormónatrú. Þá fullyrti Hildur að gömul tilvitnun úr Samúel væri röng og starfsheiti hennar einnig, að hún væri stílisti og förðunarfræðingur.
Þjóðþekkt eftir VIP-partí
Hildur Líf varð þjóðþekkt fyrir svokallað VIP-partí og fyrir vitnisburð í sérstæðu dómsmáli. Hún játaði við aðalmeðferð í málinu að hafa farðað þolanda í málinu eftir hrottafengnar árásir tveggja manna. Eftir dómsmálið dró Hildur Líf sig í hlé og úr Kastljósi fjölmiðla.
Vera Hildar í dómsal var tilkomin vegna þess að tveir höfðu svipt annan frelsi og hótuðu að beita hann og fjölskyldu hans ofbeldi nema hann útvegaði tíu milljónir í reiðufé. Þeir áttu einnig að hafa veist að manninum með höggum og spörkum og lamið með rafmagnssnúrum, belti, samúræjasverði í slíðri og moppuskafti. Hildur Líf var svo beðin um að farða unga manninn og síðar var farið með hann í klippingu til Karls Berndsen.
Hildur Líf bar vitni í réttarsal og birtist hér hluti umfjöllunar DV:
Þá spurði saksóknari hver hefði beðið hana að farða strákinn. Svaraði Hildur því til að hann hefði sjálfur beðið hana um að farða sig. Saksóknari sagði hana hafa svarað í skýrslutöku hjá lögreglu að Ríkharð hefði beðið hana um að farða hann. Hildur þrætti fyrir það og sagði:
„Ég hef þá bara misskilið mig.“
Þegar saksóknari benti henni á að vitnisburður hennar hjá lögreglu væri til á hljóðupptöku snöggreiddist Hildur Líf og sagði við saksóknara:
„Þetta eru bara stælar í þér.“
Dómari ávítti þá Hildi Líf og sagði henni að vera kurteis. Dómarinn þurfti ítrekað að biðja Hildi Líf að færa sig nær hljóðnemanum. Hann útskýrði þá fyrir henni að hún yrði að sitja nálægt hljóðnemanum til þess að vitnisburður hennar næðist á upptöku. Þá snöggreiddist Hildur aftur og sagði hátt:
„Ég er ekki þroskaheft.“
Þá heyrðist frá vinkonu hennar sem sat meðal áheyranda:
„Heyr, heyr.“
Staðan núna hjá Hildi Líf
Hildur Líf átti seinna eftir að ræða veru sínu í dómsal í samtali við þáttinn Týnda kynslóðin.
„Ég sagði að ég hefði misskilið dómarann. Það að fréttamaður sé hlerandi á bakvið hurðina og heyrir eitthvað, fær ekki að koma inn, heyrir eitthvað auðvitað verður það þvílíkt fár. Ég sagði aldrei að ég hefði misskilið sjálfan mig. Það væri út í hött.“
Þann 16. september árið 2014 greindi Vísir frá því að Hildur hefði gift sig og gengið að eiga Albert Higgins 27 ára lögfræðinema sem var búsettur í Arizona í Bandaríkjunum. Þá sagði í frétt Vísis að Hildur hefði tekið upp mormónatrú. Ári síðar greindi Séð og heyrt frá því að Hildur Líf ætti von á barni með Albert. Albert sem er frá Arizona í Bandaríkjunum starfaði sem trúboði á Íslandi þegar þau Hildur Líf kynntust.
Það sama ár kom fram í DV að Hildur og Albert hefðu ákveðið að giftast. Þremur mánuðum síðar greindi Vísir frá því að Hildur Líf hefði stöðvað vopnað ráð með hlýju og kærleika.
Þá hafði 21 árs gömul kona ógnað starfsfólki Make Up Gallery á Glerártorgi með hnífi og seildist eftir peningum í versluninni. Sérsveit lögreglunnar var kölluð út en það var Hildur Líf sem stöðvaði ránið, ræddi við konuna og róaði hana. Hildur sagði:
„Ég sýndi bara manneskjunni hlýju og kærleika og við það róaðist hún. Það er oft þannig að kærleikurinn getur gert mikið og í þessu tilviki heppnaðist það.“
Hildur Líf hafi svo flutt til Bandaríkjanna á Valentínusardaginn árið 2015.
Siðanefnd tók málið fyrir
DV fór fram á að kæru yrðu vísað frá. Starfandi ritstjóri á DV fór fram á að kæru yrði vísað frá vegna vanreifunar og að skorti á lýsingar hvað DV hefði gert rangt. Greinin væri aðeins upprifjun á dómsmáli sem kærandi tengdist á þeim tíma. Hvergi í grein kæmi fram að Hildur væri grunuð um eitthvað saknæmt og ekkert efnislega rangt við umfjöllun DV frá árinu 2011.
Siðanefnd staðfesti í úrskurði sínum að í hvorugri grein sem birtist um Hildi Líf á þessum tíma væri haldið fram að hún hafi verið grunuð um saknæmt athæfi og skýrt tekið fram að hún væri í réttarsal sem vitni. Þá segir í úrskurðinum:
Hið meinta ónákvæmni virðist óveruleg, t.d. um að kærandi búi í USA (hið sanna sé að hún búi bæði á Íslandi og USA) og að hún sé mormóni (hið sanna sé að hún tilheyri LDS kirkjusöfnuðinum sem oft er kenndur við mormónakirkjuna). Þá voru ummæli um stresskast tilvitnun í þingvörð og ekki væri hægt að sjá að rangt væri að Hildur hefði starfað sem stílisti og förðunarfræðingur.
Af kærunni má einnig ráða að Hildur Líf telji að DV hafi lagt sig í einelti. Segir í úrskurðinum að ekki sé hægt að sjá að það eigi við rök að styðjast.
Í niðurstöðu segir:
Af öllu þessu virtu verður ekki séð að DV hafi í umfjöllun sinni um kæranda gerst brotlegt við siðareglur B.Í.