Hildur hjólar í Dag vegna þjóðarhallarinnar: „Hefur fallið á þessu prófi“

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að viljayfirlýsingin um að hefja framkvæmdir á nýrri þjóðarhöll sé enn eitt dæmið um að borgarstjóri Reykjavíkurborgar sé að skrifa undir yfirlýsingu án skuldbindingar og að lofa hlutum sem hann gæti ekki staðið við.

Fyrr í dag undirritaði Dagur ásamt Ásmundi Einari Daðasyni og Katrínu Jakobsdóttur viljayfirlýsingu um að ný þjóðarhöll yrði í Laugardal. Í yfirlýsingunni var vonast til þess að hún yrði tilbúin árið 2025.

Hildur segir að þetta sé enn eitt dæmið þar sem Dagur sé að lofa upp í ermina án þess að þurfa að standa í skilum.

„Borgarstjóri veit auðvitað vel að viljayfirlýsingar eru ekki ávísun á nokkurn skapaðan hlut. Um það vitna fjölmargar undirskriftir hans á slíkar yfirlýsingar sem engu hafa skilað öðru en þornuðu bleki og brostnum vonum,“ skrifar Hildur á Facebook í kvöld.

Hildur bætir við að þetta sé nýjasta dæmið um leið meirihlutans til að tefja og svæfa málin í Laugardal og segir hneyksli að það hafi verið til skoðunar að reisa þjóðarhöll utan borgarmarkanna.

„Vitaskuld á Reykjavík sem höfuðborg landsins að sjá metnað sinn í því að keyra áfram uppbyggingu á þjóðarleikvöngum í vöggu íþróttanna í Laugardal. Það á ekki einu sinni að vera til umræðu að þessi mannvirki rísi annars staðar og það er hlutverk borgarstjóra að tryggja að svo verði. Á því prófi hefur hann hins vegar fallið og enn ein viljayfirlýsingin er því miður ekki líkleg til að breyta neinu í þeim efnum.“