Það er kostulegt en líka nokkuð dapurlegt að fylgjast með leikaranum, rithöfundinum og fyrrverandi borgarstjóranum Jóni Gnarr segja frá raunum sínum fyrir nokkrum árum þegar hann var að tapa heyrn sinni, án þess þó að hann gerði sér nokkra grein fyrir því hvernig komið væri fyrir honum.
Rætt er við Jón Gnarr í fræðsluþættinum Heyrninni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, en um tveggja þátta röð er að ræða og var fyrri þátturinn sýndur fyrir réttri viku. Þar fór þáttastjórnandinn Sigmundur Ernir í heyrnargreiningu með þokkalegri útkomu fyrir karl á hans aldri - og kynnti sér svo öll þau úrræði sem standa til boða fyrir fólk sem er byrjað að missa heyrn - og er þar um stóran hóp að ræða eins og skýrt kemur fram í heimsókn hans í Heyrnar- og talmeinastöð ríkisins þar sem rætt er við fjölda sérfræðinga og fólk sem leitað hefur sér aðstoðar við margvíslegum heyrnarkvillum.
Jón Gnarr segir að fagfólkið á Heyrnar- og talmeinastöðinni hafi aukið svo á lífsgæði sín að varla fái nokkur orð því lýst. Hann hafi gengið um í villu og svíma um langt árabil áður en hann lét til leiðast og leitaði sér hjálpar. Í fyrsta lagi hafi hann misskilið heimilisfólkið sitt hrapallega, haldið því lengi vel fram að konan sín kynni ekki að tala, svo þvöglumælt sem hún væri - og kæmi varla út úr sér skiljanlegu orði. Í öðru lagi hafi hann í sífellu verið að misskilja fólk á förnum vegi - og nefnir þar dæmi af konu einni sem spurði hann ítrekað hvort hann hefði verið í HA, en auðvitað hafi hann kváð og það oftar en einu sinni, milli þess sem hann reyndi að sannfæra konuna um að hann hefði aldrei nokkru sinni verið í HA. Svo kom á daginn að hún var að spyrja hann hvort hann hefði verið mikið í hávaða. Í þriðja lagi hafi hann svo verið farinn að einangrast, veigrað sér við að taka þátt í samtölum, einkum og sér í lagi sakir þess að hann vissi að hann myndi gera sig að fífli færi hann að taka þátt í þeim.
Heyrnin byrjar klukkan 20:00 í kvöld. Fyrri þáttinn má svo sjá á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp, þangað sem sá seinni ratar á næstu dögum. Þættirnir verða einnig endursýndir á sjónvarpsstöðinni Hringbraut á næstu dögum og vikum.
Allra frekari upplýsingar má einnig afla á hti.is