Þorsteinn Pálsson segir í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is að það sé vart hægt að leggja að jöfnu hvort veita eigi undanþágu frá verkfalli fyrir svín eða sjúklinga; undanþágurökin hljóti að gilda frekar um líf fólks en slátrun dýra.
"Þessi spurning verður enn áleitnari, " skrifar Þorsteinn "eftir að embætti landlæknis lagði það mat fyrir ríkisstjórnina nú í vikunni að ástandið í heilbrigðiskerfinu væri komið út yfir þau mörk að hægt sé að tryggja öryggi sjúklinga."
Þorsteinn segir enn fremur: "Fullyrða má að þetta er alvarlegasta álit opinberrar eftirlitsstofnunar sem birt hefur verið í manna minnum. Undanþágurnar duga með öðrum orðum ekki einu sinni til að tryggja skammtíma öryggi sjúklinga sem leita þurfa til heilbrigðisstofnana. Svo fáum við aldrei að vita hvað tafir á rannsóknum og meðferð þýða í einstökum tilvikum þegar fram í sækir."
Spurningin er þessi að mati hins reynda og virta stjórnmálamanns: "Er hægt að láta við þetta sitja? Er eðlilegt og ásættanlegt í lýðræðisþjóðfélagi að umræðan um skýrslu landlæknis og viðbrögð við henni hafa verið í öfugu hlutfalli við þungann í niðurstöðu hans?"
Sjá má allan pistil Þorsteins efst í pistladálknum á forsíðunni á hringbraut.is