Heyrðu Hannes Hólmstein herma eftir Margaret Thatcher

Hannes Hólm­steinn Gissurar­son, stjórn­mála­fræði­prófessor, ræddi um Margaret Thatcher, fyrr­verandi for­sætis­ráð­herra Bret­lands, í þættinum Svona er þetta á Rás 1 um helgina.

Hannes hefur að undanförnu rætt mikið Thatcher og feril hennar eftir að því var gert skil í hinum vinsælu þáttum Crown sem sýndir eru á Netflix. Hannes hefur sjálfur hitt Thatcher og rætt við hana oftar en einu sinni.

Sjá einnig: Hannes gefur lítið fyrir Thatcher í Crown

Í þættinum á Rás 1 ræddi hann um eitt samtal þeirra, þegar hann kom með beina tilvitnun í hana breytti hann rödd sinni og hermdi eftir hennar einstaka talanda. Klippa úr þættinum rataði á Twitter og má hlusta á hana hér að neðan: