Hetjan hilmar drýgði mikla hetjudáð: „þetta er ekki skemmtileg upplifun“

Rauði krossinn hefur útnefnt Hilmar Elísson sem skyndihjálparmann ársins 2019. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum. Hilmar sýndi mikið þrekvirki þegar hann bjargaði manni í Lágafellslaug í Mosfellsbæ.

Hilmar er fastagestur í lauginni ákvað að taka auka sundsprett þann 28. janúar í fyrra áður en hann myndi slaka á í pottinum. Þegar hann var kominn í dýpri enda laugarinnar sá hann mann á botninum. Hann hugsaði með sér að mögulega væri hann að kafa en ákvað að athuga nánar með hann. Hilmar ýtti við manninum sem sýndi engin viðbrögð. Hilmar fór þá aftur niður, greip í manninn og togaði upp en þá var maðurinn alveg líflaus.

Hilmar tjáði sig við Mosfellingur.is þegar hann var kosinn Mosfellingur ársins fyrr á árinu. Þá sagði Hilmar:

„Þegar ég var að synda eftir æfinguna sá ég mann liggja á botninum, þetta var í dýpri enda laugarinnar og ég sá strax að þarna var ekki allt með felldu. Ég kafaði eftir manninum, það tókst ekki í fyrstu tilraun en í annarri tilraun náði ég til hans. Ég náði svo að kalla á hjálp við að koma manninum upp á bakkann.“

Hilmar kallaði á fleiri til að aðstoða sig við að ná manninum upp á bakkann. Annar maður hóf endurlífgun meðan Hilmar hljóp og lét hringja á 112. Með Hilmari í karlaþrekinu er margreyndur slökkviliðsmaður sem var í pottinum þegar atburðarásin fór af stað en hann tók yfir endurlífgunina. Hilmar segir að það hafi tekið rúma mínútu að fá lífsmark í manninn aftur. Sjúkrabíllinn var fljótur á leiðinni og Hilmar ákvað að klára sundið þegar aðrir höfðu tekið við.

Hilmar vill ekki gera mikið úr sínum þætti í þessu, hann hafi einfaldlega verið á réttum stað á réttum tíma og margir hafi komið að björguninni.  Hilmar sagði einnig við mosfellingur.is:

„Það er mjög skrítið að lenda í svona aðstæðum, maður framkvæmir bara ósjálfrátt eftir bestu getu en fær svo svolítið sjokk á eftir þegar maður áttar sig á hvað hefur gerst. Þetta er ekki skemmtileg upplifun en það var gott að allt fór vel en allir aðilar sem komu að þessu, starfsmenn og aðrir, stóðu sig með prýði. Ég var bara einn hlekkur í keðju sem vann gott verk.“

Eftir þetta kenndu tveir meðlimirnir í karlaþrekinu hinum skyndihjálp, en þeir eru skyndihjálparleiðbeinendur. Hilmar sjálfur hefur nokkrum sinnum yfir ævina lært skyndihjálp. Skyndihjálp þarf að rifja reglulega upp, a.m.k. á tveggja ára fresti.

Í skeyti Rauða krossins segir að skyndihjálp getur skilið milli lífs og dauða. Það verður aldrei ítrekað nógu oft hversu mikilvæg skyndihjálp er og hversu mikilvægt það er að bregðast við þegar fólk sér eitthvað óeðlilegt og kanna aðstæður.

Hægt er að taka bóklega hluta skyndihjálpar á ókeypis vefnámskeiði á namskeid.raudikrossinn.is