Hert peningamarkaðsskilyrði

Frá sjónarmiði Íslendinga er það sérlega mikilvægt þar sem Kína er stærsti ál- og orkunotandi í heimi. Lars Christensen alþjóða hagfræðingur segir í grein í Viðskiptablaðinu að peningamarkaðsskilyrði Kína hafi verið hert nýlega.

Lars segir að við megum aldrei hunsa það sem næst stærsti seðlabanki í heimi gerir. Einmitt núna gæti Alþýðubanki Kína verið að gera stefnumarkandi mistök - að herða peningamálastefnuna þegar hið gagnstæða gæti verið nauðsynlegt - og það gæti verið einn þeirra þátta sem valda þeim titringi sem við höfum séð á fjármálamörkuðum heimsins að undanförnu.

Þess vegna er góð ástæða til að hafa auga með aðgerðum Alþýðubanka Kína á næstu mánuðum. Ótímabær herðing á peningamálastefnu getur haft neikvæð áhrif á ál- og orkuverð. Mikilvægt er að hafa auga með þessu - jafnvel frá sjónarhóli Íslendinga.

Nánar www.vb.is