Lögreglumenn hjá embætti lögreglustjóranns á Norðurlandi eystra halda uppi sérstöku eftirliti með veitingastöðum og skemmtistöðum í umdæminu þessa dagana. Átakið hófst um síðustu helgi og stendur fram á sunnudag. Samkvæmt heimildum Hringbrautar nær átakið víðar um landið.
Áhersla er lögð á að skoða rekstrarleyfi, hvort dyraverðir séu með réttindi og að aldur starfsmanna við áfengissölu sé í lagi. Þá verður sérstaklega skoðað hvort gestafjöldi sé innan leyfilegra marka, að aldurstakmörk séu virt sem og opnunartími sé virtur. Vikudagur.is greindi fyrst frá rassíunni.
Að sögn veitingamanns sem Hringbraut hafði samband við er pottur víða brotinn í þessum efnum. Þörf sé á landsátaki, helst allan ársins hring, en sérstaklega sé mikilvægt að samræma áfengiskaupaaldur við aldurstakmörk staða.