Herrahornið: kúnstin að reima rétt

Það er ekki sama hvernig menn reima skóna sína; ef vel er að verki staðið á að hnýta skóþveng sinn með sama hætti og slaufan um hálsinn er bundin með tilþrifum - og vel að merkja; ef menn reima undir, en ekki yfir, snýr slaufan rétt.

Það eru ekki allir sem kunna þetta handbragð, sem í flestum tilvikum er svo ósjálfrátt að karlpungar á miðjum aldri taka ekki eftir því, en ef menn eru eilíflega að blóta því að slaufan losni á skónum, þá er hún hún svo að segja örugglega bundin vitlaust, fyrri þráðurinn fer ekki undir heldur yfir - og fyrir vikið snýr slaufan fram á skótána en ekki þversum á skóna. Og það þykir ólekkert.

Og svo er hitt, allir þekkja skóstærð sína á lengdina, en kunna menn að velja sér skó á þverveginn? Það er stóra spurningin sem svar fékkst við í Herrahorninu í gærkvöld sem helgaði sig skóm og þvengum, en lærimeistarar að þessu sinni voru kaupmennirnir Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson sem eru menn sem hafa löngum kunnað að gyrða sig gæfulega í brók.

Á eftir Herrahorni Sigmundar Ernis  í gærkvöld kom svo Dömuhornið í umsjá Sirrýjar þar sem hún laðar fram dömuna í hverjum kvenmanni, en í þætti kvöldsins var fjallað um töskur og slæður sem getur nú ekki verið kvenlegra - og jafnframt raunar eins langt frá karllægum gildum og mörgæs er frá norðurhöfum.

Dömuhornið og Herrahornið er hægt að nálgast í heild sinni inni á hringbraut.is.