Herrahornið á Hringbraut, sem er þáttur mannasiði og móðins útlit, fjallaði í gærkvöld um aukna ásókn íslenskra karlmanna í hatta og höfuðföt, en hvorutveggja hefur mjög verið að ryðja sér til rúms í tískuheiminum víða um lönd.
Hattar hurfu svo að segja af höfðum karlmanna í heimi hér á sjöunda áratug síðustu aldar. Fram kom í þættinum að eftir forsetakjör Johns F. Kennedys vestur í Bandaríkjunum breyttist allt í þessum efnum; fyrsti hattalausi forsetinn hafi þá komið fram á sjónarsviðið og karlmenn hafi almennt áttað sig á því að það var valkostur að vera berhöfðaður á almannafæri. Við þetta hafi jafnvel bílar breyst, en fram að þessum tíma hafi verið hátt til lofts í bílum af eðlilegum ástæðum.
Í þætti gærkvöldsins sagði Georg innanbúðardrengur í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar áhorfendum hvernig þeir eiga að bera hatta og hvaða lögun hæfir höfuðlagi hvers og eins - en að mörgu er að huga í þessum efnum, enda ekkert áhlaupsverk að girða sig almennilega í brók og hafa útlitið á hreinu þegar menn eru ekkert endilega aldir upp við það að hugsa um útganginn á sér.
Í fyrri þáttum Herrahorns hefur verið fjallað um slaufur og slifsi, klúta og brjósttau, buxnasídd og mittisgirðingu og réttu ermasíddina á skyrtum og jökkum.
Hægt er að horfa á Herrahornið með því að smella hér: