Herrahornið - og nú dömuhornið

Sjónvarpsþættirnir Herrahornið á Hringbraut þar sem karlmönnum á öllum aldri er kennt að girða sig í brók hafa eignast systur á sjónvarpsstöðinni, en Dömuhornið fer í loftið í kvöld, strax á eftir bróður sínum.

Herrahornið í umsjá Sigmundar Ernis hefur notið vinsælda í sumar, enda er körlum þar kennd trix af öllu tagi, svo sem að binda hnúta, setja á sig klúta og brjóta þá í vasa fyrir nú utan það hversdagslega að binda skóreimarnar rétt. Þættirnir hafa verið unnir í samvinnu við Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar þar sem tískan er ekki endilega að elta rófuna á sér.

Herrahornið færist nú yfir á föstudagskvöld og fjallar þáttur kvöldsins, sem hefst 20:00 um hvort menn eigi að vera með belti eða axlabönd, klæðast venjulegri skyrtu eða þessum með ermahnöppunum. Og strax að honum loknum mætir sjónvarpskonan Sirrý til leiks með fyrsta Dömuhornið á Hringbraut, en þar mun hún meðal annars hjálpa konum að velja á sig brjóstahaldara.

Dömuhorninu er ætlað að leiðsegja konum hvernig þær geta dregið fram dömuna í sér svo eftir verður tekið - og verða á dagskrá Hringbrautar fram í miðjan október, rétt eins og stóri bróðir, en þá hefjast sýningum á glænýrri þáttaröð af Kvennaráðum Bjarkar Eiðsdóttur en umfjöllun hennar um viðkvæm kvennamál og samskipti kynjanna vakti mikla athygli síðasta vetur og vor. 

Herrahornið er sem fyrr segir frumsýnt klukkan 20:00 í kvöld og Dömuhornið tekur við klukkan 20:15, en þættirnir eru svo endursýndir klukkan 22:00 og 22:15 og eru einnig sjáanlegir á tímaflakki og á hringbraut.is.

Horfa á Dömu- og Herrahornið