Herra Hnetu­smjör tekur um­mælum Sig­ríðar ekki mikið inn á sig

Herra Hnetusmjör svara Sigríði Andersen, fyrrverandi ráðherra, vegna athugasemda hennar um ferðalag hans til Lundúna.

Herra Hnetusmjör tjáir sig ekki mikið um málið á Instagram-síðu sinni en þó í fjórum myndum.

Í samtali við Vísi segir Herra Hnetusmjör: „Mér finnst þetta bara fyndið. Mér finnst alveg eðlilegt að vera að ferðast þegar maður er fullbólusettur og fylgir öllum reglum,“ um málið.

Þá segist hann einnig ekki taka ummæli fyrrverandi ráðherra og fráfarandi þingmanni mikið inn á sig.

MBL greindi frá því að tón­list­armaður­inn Árni Páll Árna­son, best þekkt­ur sem Herra Hnetu­smjör, séu stadd­ur í Lund­ún­um um meðkær­ustu sinni, Söru Linn­eth Castañeda.

Sigríður segir á Twitter: „Altso… Er þetta maðurinn sem vildi loka landamærum Íslands með ofbeldi?,“ spyr hún og vísar til ummæla Herra Hnetusmjörs frá því fyrr í faraldrinum. Þá sagði hann: „Hversu oft þurfa íslenskir ríkisborgarar að loka sig af á meðan túristar þykjast fara í sóttkví? Hversu mörg afbrigði inn um landamærin til að við gefum skít í ríkisstjórnina? Við erum greinilega ekki í þessu saman.“ Þá vildi hann láta teppa Reykjanesbrautina til að halda veirunni úti.

Svar Herra Hnetusmjörs á Instagram-síðu hans. Mynd/Skjáskot
Mynd/Samsett

Hér má svo sjá Twitter-færslu Sigríðar sem hún setti inn í gær.