Hernaðarmáttur frakklands

Yfirmaður franska heraflans Pierre de Villiers hefur sagt af sér embætti sökum ágreinings milli hans og forseta Frakklands Emmanuel Macron. Forsetinn áformar að skera niður í ríkisrekstri enda er halli ríkissjóðs nærri 100 milljarðar evra.

Franski heraflinn eins og aðrar ríkisstofnanir þarf að sætta sig við minna ráðstöfunarfé. Þetta segir Pierre de Villiers skaða hernaðarmátt Frakklands og hann sagði þess vegna af sé embætti.

Nokkuð er síðan jafn hátt settur atvinnuhermaður hefur sagt af sé embætti. Afsögn hans vekur illa dulinn kvíða meðal bandamanna Frakka.

Hingað til hefur það verið viðtekin skoðun í Frakklandi að stefna landsins í varnarmálum sé mótuð að einsýnni þjóðenisstefnu og blendnum tilfinningum Frakka til skuldbindingar landsins við sameiginlega markmið NATO ríkanna. Frakkar hafa alla tíð verið erfiðir í NATO samstarfinu. 

Þetta eru ástæðulausar efasemdir. Pierre de Villiers hljóp á sig þegar hann atyrti forseta Frakklands opinberlega fyrir áform forsetans um að draga úr útgöldum til varnarmála. Eyðsla franska heraflans er ekki óhófleg en heraflinn þarf að spara eins og aðrar ríkisstofnanir. Takmarkaðar efnahgslegar ástæður Fraklands gefa ekkert tilefni til hárra útgjalda til varnamála.

Nánar www.afp.com/en

[email protected]