Hermann forstjóri með lausn á vanda flugstöðvarinnar: „Það er hægt að hugsa í lausnum“

Mikið hefur verið rætt um örtröð í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Langar raðir og leiðbeininga sé ábótavant í flugstöðinni. Hefur ISAVIA hvatt fólk til þess að mæta snemma til að draga úr raðamyndunum.

Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, var sjálfur staddur í Leifsstöð um daginn og sá örtröðina með eigin augum. Hann segir á Facebook að hann sé með lausn á vandanum:

„Ef ég hefði verið spurður um það hvernig bæta mætti ferlið þá hefði ég einfaldlega lokað brennivínsbúðinni í komusal og breytt því rými þannig að öll vottorð væri afgreidd þar og síðan færu farþegar í töskusal og út,“ segir Hermann.

„Fyrir þá sem ekki geta ferðast án þess að kaupa ódýrara áfengi væri mjög einfalt að sækja QR kóða með flugmiðanúmerinu og með honum versla einfaldlega í næstu Vínbúð með sama afslætti og í Keflavík.“

Margir hafa tekið undir með Hermanni sem segir einfaldlega: „Það er hægt að hugsa í lausnum.“