Dýravinurinn Ole Anton Bieltvedt fer hörðum orðum um Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, vegna þess að Guðlaugur hefur farið á skotveiðar og veitt hreindýr.
Guðlaugur, sem stendur nú í harðri prófkjörsbaráttu við dómsmálaráðherrann Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, hefur áður verið gagnrýndur fyrir þetta áhugamál en nú slær við harðari tón þar sem Ole vill að öllum frambjóðendum sem finnst skotveiðar í lagi verði hafnað.
„Undirrituðum verður stundum hugsað til þess, að það eru ekki dýrin, sem eru skepnur, heldur mennirnir. Önnur eins hugmynd og annað eins stefnumál; að murka líftóruna úr hreindýrum með boga og örvum. Illskiljanlegur blóðþorsti og grimmd gagnvart saklausum og varnarlausum dýrum!,“ segir Ole Anton í langri grein á Vísi.
„Flott sport og tómstundagaman það! Það er von, að utanríkisráðherra og aðstoðarmaður félagsmálaráðherra njóti sín í þessum óþörfu og vægðarlausu árásum á saklaus og varnarlaus dýr.“
Ole Anton vill að öllum svona mönnum verði hafnað:
„Í haust eru kosningar. Allir hugsandi menn, ekki sízt þeir, sem láta sér annt um dýr, umhverfi og náttúru - lífríki þessarar einu jarðar, sem við eigum - ættu að skoða frambjóðendur vel; kynna sér, hvað leynist á bak við breitt brosið og fögur orð, hverjir þeir eru í reynd, áður en þeir kjósa.“