Ungir jafnaðarmenn segjast ekki ætla að veita nokkurn afslátt af baráttumálum sínum á komandi landsfundi Samfylkingarinnar, sem hefst á morgun. Eva Indriðadóttir, formaðurinn UJ segir að flokkurinn verði að aðlaga sig nútímanum og boðar harða baráttu gegn þeim sem hún kallar íhaldssama jafnaðarmenn.
Fyrir landsfundi liggja tvær umdeildar tillögur frá ungliðunum, önnur í olíumálum og hin í landbúnaðarmálum. Í landbúnaðarmálum leggja þeir til að allt kerfið verði endurskoðað með það að markmiði að auka nýliðun í greininni og stuðla að nýsköpun, samkeppni og sjálfbærni. Olíutillagan felur í sér að Samfylkingin hafni olíuvinnslu við Íslandsstrendur.
Þriðja áherslumál UJ á landsfundinum varðar jafnrétti trúfélaga, svo og aðskilnað ríkis og kirkju, en þar segir: "Jafnaðarmannaflokkur er það bara að nafninu til ef hann styður forréttindastöðu eins trúfélags á kostnað allra hina. Ungir jafnaðarmenn krefjast fulls jafnréttis trúfélaga á Íslandi og munu berjast af hörku gegn íhaldssömum jafnaðarmönnum um það mál," segir Eva.