Herdís Egilsdóttir, rithöfundur og kennari, fæddist og ólst upp á Húsavík. Hér segir hún meðal annars frá æskuslóð sinni og bernskuminningum, hárinu sem hvarf og fannst aftur, brunanum þegar æskuheimilið brann, skrítnum sýslumanni, bestu vinkonu sinni Huld í Skuld, fermingunni í fallegustu kirkju landsins, og bílnum sem keyrði mannlaus niður heiðina
Herdís Egilsdóttir er fædd á Húsavík 18. júlí 1934. Hún lauk stúdentsprófi frá MA og kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1953 og hefur hún kennt fimm til átta ára börnum við skóla Ísaks Jónssonar allar götur síðan. Herdís hefur gefið út heilmikið af bókum, sjónvarpsefni og leikritum fyrir börn. Auk þess hefur hún þróað kennsluaðferðina Kisuland sem er kennsluaðferð í samfélagsfræði. Árið 1998 hætti Herdís kennslu til þess að sinna því að breiða út kennsluaðferð sinni sem hún kallar Landnámsaðferðina.
.