Katrín Jakobsdóttir, formaður VG og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og ræða jarðasölu til erlendra fjárfesta, oft á tíðum milljarðarmæringa - á Þjóðbraut hjá Lindu Blöndal í kvöld, fimmtudag. Katrín sagði ennfremur að málið snerist um fullveldi og almannarétt um landið og benti Sigurður Ingi á að tilteknar jarðir ættu að vera í eigu ríkisins. Hann nefndi kaup ríkisins á landi við Jökulsárlón sem dæmi um það og nú eigi það sama við t.d. um Hjörleifshöfða.
Eigendastefnu ríkisins vantar algerlega og herða þarf reglur um hverjir megi kaupa jarðir, voru þau sammála um en jörðunum fylgja oft mikil hlunnindi og eign á náttúruauðlindum.
Svo virðist sem nokkuð þverpólitísk sátt sé um að endurskoða alla umgjörð slíkra mála en Sigríður Andersen dómsmálaráðherra vill fastmótaðri reglur en nú gilda um jarðakaup útlendinga hér á landi samkvæmt samtali við Morgunblaðið.
Rúmlega 7.600 jarðir eru í fasteignaskrá, 384 eru í eigu einstaklinga með lögheimili erlendis og 62 jarðanna eru að öllu leyti í eigu erlendra aðila. Þetta kom fram í svari við fyrirspurn á Alþingi í fyrra.
Íslenskir ríkisborgarar, útlendingum með lögheimili hér á landi og EES-borgarar hafa sama rétt til jarðakaupa. Útlendingar búsettir utan EES þurfa hins vegar að sækja um undanþágu til dómsmálaráðuneytisins vilji þeir eignast fasteign hér á landi, hvort sem um mannvirki eða jörð er að ræða. Þá þurfa þeir að sýna fram á hvers konar uppbyggingu þeir hyggjast fara í á umræddu landi.