Herbergjum fjölgar örar en ferðafólki

Útlit er fyrir að hótelherbergjum í Reykjavík fjölgi um 1500 á árabilinu 2014 til 2017, sem er ríflega 40% aukning frá því sem var fyrir þann tíma, en á sama tíma gera hóflegar spár ráð fyrir um 38% aukningu ferðamanna á þessu tímabili. Þegar einnig er haft í huga að aukinn straumur ferðafólks til landsins hefur notfært sér í ríkari mæli gistiheimili en áður er útlit fyrir að fjárfesting í hótelum hér á landi verði rífleg á næstu misserum og líklega umfram eftirspurn.


Þá hefur það einnig komið í ljós í rannsóknum Atla Björn Ingimarssonar við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands að arðsemi hótela í Reykjavík er ekki jafn góð og arðsemi hótela á landsbyggðinni, en um 60% hótela í Reykjavík skiluðu tapi árið 2012. Nýting hótelherbergja í Reykjavík er þó mun betri en á landsbyggðinni en munurinn árið 2013 var rúmlega 33%. Þrátt fyrir þennan mikla mun á nýtingu er hagnaður á hvert herbergi í Reykjavík fyrir skatta neikvæður.


Þá hefur einnig komið í ljós í fyrrgreindum rannsóknum Atla Björns að ferðamenn velja nú í meira mæli fjölbreyttara úrval gistiþjónustu en áður, en árið 2012 gistu 77% allra ferðamanna á hótelum en árið 2013 var hlutfallið komið í 70%. 


Samkvæmt þessum rannsóknum er því útlit fyrir að aukinn straumur erlends ferðafólks til Íslands haldi ekki í við fjölgun hótelherbergja hér á landi.