Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun alla þá sem ákærðir voru í SPRON-málinu svokallaða en það fjallaði um tveggja milljarða króna.fyrirgreiðslu til Exista, án tryggingar eða mats á greiðslugetu.
Fjórir fyrrverandi stjórnarmenn SPRON, þau Ari Bergmann Einarsson, Jóhann Ásgeir Baldurs, Margrét Guðmundsdóttir og Rannveig Rist, sem og fyrrverandi sparissjóðstjóri SPRON, Guðmundur Örn Hauksson, voru ákærðir í málinu fyrir að hafa mistotað aðstöðu sína og stefnt fé sparisjóðsins í verulega hættu með því að fara út fyrir heimildir til lánveitinga, meðal annars með því afgreiða það án trygginga eða mats á greiðslugetu og eignastöðu félagsins í samræmi við útlánareglur. Lánið var framlengt fjórum sinnum í kjölfarið en aldrei greitt til baka. Taldi saksóknari um stórfelld brot að ræða.
\"Niðurstaðan er vonbrigði,“ sagði Birgir Jónasson, saksóknari í SPRON-málinu við mbl.is í morgun. \"Ég þarf að fá að kynna mér niðurstöðuna og forsendur dómsins.“ Hann vildi ekkert segja um mögulega áfrýjun, það væri ríkissaksóknara að ákveða það.
Andri Árnason, verjandi Guðmnundar Arnar Haukssonar, sagðist við vefmiðilinn ekki hafa lesið dóminn í heild en sýndist á öllu að dómurinn byggði á þeim forsendum sem hefðu verið lagðar til grundvallar, að ekki hafi verið um umboðssvik að ræða og ekki fjártjónshætta við lánið sem ákært var vegna. Hann sagðist ekkert frekar eiga von á að ákæruvaldið myndi áfrýja dómnum.